Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Vörulistar til að kynna vörur, vöruflokka og vöruúrval

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Ef fyrirtækið þitt er með mikið vöruúrval sem þarf að kynna á netinu ættir þú að skoða möguleikana í Drupal. Með vefsíðugerð frá Emstrum og Drupal hugbúnaði er hægt að setja upp öflugt kerfi sem auðvelt er að uppfæra og flokka. Kerfi sem gerir þér kleift að gera breytingar og uppfærslur þegar þér hentar. Þá er auðvelt að setja vörulistann upp með þeim hætti sem hentar þér og þínu fyrirtæki.

Vöruflokkar

Eðlilega nægir ekki öllum að vera með einn lista yfir þær vörur sem fyrirtækið hefur á boðstólunum. Það getur verið nauðsynlegt að sýna vöruflokka. Sem dæmi má nefna að fyrirtæki getur verið með heimilistæki en vill flokka þau niður í ísskápa, þvottavélar, þurrkara, hrærivélar o.s.frv. Þannig að viðskiptavinurinn geti nálgast það sem hann leitar að með auðveldum og þægilegum hætti.

Varan sjálf

Þegar viðskiptavinurinn hefur fundið það sem hann leitar að á netinu þarf hann að geta með einum smell fengið allar upplýsingar um vöruna sjálfa. Með þessum hætti gæti hann verið rúmlega hálfnaður í ákvörðun sinni um að kaupa þegar hann kemur í búðina. Láttu vefsíðuna spara tíma við afgreiðslu með því að hjálpa viðskiptavininum að taka ákvörðun.

Hafðu vald yfir vörulistanum

Með vefsíðugerð frá Emstrum og Drupal vefumsjónarkerfinu færðu fullkomið vald yfir vörulistanum þínum. Með því að skrá þig inn getur þú gert allar þær viðbætur, lagfæringar, uppfærslur, myndbreytingar og almennar breytingar sem þú þarft. Með einum smell á músina eru breytingarnar komnar út á netið.

Haltu utanum vörurnar þínar á netinu

Emstrur vefsíðugerð - Vörulistar