Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Skjalavistun með aðgangi að sameiginlegum gögnum

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Hefur þú þörf fyrir sameiginlegan stað þar sem mikilvæg skjöl og gögn eru vistuð og eingöngu ákveðnir starfsmenn eða félagsmenn hafa aðgang að? Góð leið til að leysa þennan vanda er að setja upp geymslupláss á netþjóninum þar sem eingöngu þeir sem til þess hafa heimild geta vistað og sótt gögnin. Þægileg aðferð þegar margir eru að vinna með gögnin hvort sem um er að ræða, texta, myndir, hlóð erða viedo.

Aðgengilegt skráarsafn

Með aðgangsstýringarkerfinu sem fylgir öllum Drupal síðum er hægt að setja upp skráarsafn sem eingöngu er ætlað ákveðnum aðilum. Þannig geta allir sem til þess hafa heimild sótt eða vistað skjöl á netþjóninum og geymt þar til notkunar fyrir aðra. Hægt er að búa til möppur fyrir pdf skjöl, fyrir fundargerðir, fyrir myndir, fyrir ársreikninga og öll skjöl og öll gögn sem skipta fyrirtækið þitt eða félagið þitt málil. Gögn sem margir hafa sameiginlegan aðgang að.

Regluleg afritun mikilvægra gagna

Auk þess að heimila aðgang að gögnunum gegnum aðgansstýringarkerfið getur skjalavistunarkefið verið mikilvæg leið til þess að geyma og viðhalda mikivægum gögnum fyrir starfsemina. Með þessari uppsetningu fyir sameiginleg skjöl er tryggt að skjölin eru afrituð reglulega um leið og vefsíðan er afrituð, sem er einu sinni á sólahring. Sjalavisun er þannig ekki aðeins til þæginda fyrir fyrirtækið eða félagið heldur er það einnig trygging fyrir því að skjöl eru reglulega uppfærð.

Allt á sama stað

Þegar fyrirtæki og félög starfa til margra ára safnast gjarna upp töluvert magn af skjölum og upplýsingum. Jafnvel fyrir lítil fyrirtæki og lítil félög. Ein leið til að koma þessum gögnum fyrir á einum varanlegum stað þar er að vista þau á netþjóninum sem skjalasafn. Með þessum hætti hafa þeir sem þurfa á gögnunum að halda fullan og óhindraðan aðgang að þeim auk þess sem gögnin eru komin í trygga geymslu. Allt er á sínum stað þegar nýtt fólk þarf að komast að gögnunum.

Tryggðu aðgang allra sem á þurfa að halda að gögnun sem eru fyrrirtækinu og félaginu mikilvæg.

Emstrur vefsíðugerð innri vefur