Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Leit sem er þrengri en Google eða bing - á þinni eigin síðu

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Almennt geta leitarvélar séð um flest sem viðkemur leit á netinu. Þær eru þó háðar þeim takmörkunum fyrir einstaka vefi að samkeppnin um birtingu í niðurstöðum er hörð. Þess vegna getur verið nauðsynlegt að geta leitað innan vefsíðunnar þegar notandinn er kominn inn á síðuna þína. Þetta getur verið nauðsynlegt þegar leitað er að gamalli frétt, nafni á einstaklingi , efnisatriði í fundargerð eða vöru í miklu vöruúrvali.

Leit á allri vefsíðunni

Í hægra horninu efst á vefsíðiunni er leitarhólf. Þar er hægt að setja inn leitarorð og smella á leita. Við það leitar vefsíðan sjálf í öllum texta vefsíðunnar að því orði sem sett er inn og skilar síðan niðurstöðum. T.d. gætir þú sett inn orðið vefsíðugerð fyrir þessa vefsíðu og fengir þá fjöldan allan af niðurstöðum þar sem mikið er fjallað um vefsíðugerð á okkar vefsíðu. Einnig gætir þú verið að leita að upplýsingum um vefhýsingu og með því að slá inn vefhýsing fengir þú einnig nokkrar niðurstöður. Þessi leit er sérlega handhæg og þægileg og flýtir mjög fyrir aðgangi notenda að þeim upplýsinum sem þeir eru að leita að.

Að takmarka leitina enn frekar

Í uppsetningu á vefsíðu frá Drupal er einnig hægt að takmarka leitina enn frekar. Á sama hátt og Drupal getur sótt ákveðna hluti í hluta af gagnagrunni vefsíðunnar til að birta með fyrirfram ákveðnum hætti, eins og t.d. að sækja vöru í vörulista og birta allar upplýsingar um vöruna, getur Drupal líka sótt ákveðna hluti með leit. Þannig er hægt að setja upp form sem heimilar notandanum að setja inn leitarorð og leita í takmörkuðum hluta vefsíðunnar. T.d. ef nauðsynlegt er að geta leitað eftir vörunúmerum í stóru safni vörulista. Með þessum hætti getur notandinn haft þá valkosti að leita mjög almennt í leitarvélum eða með mjög hnitmiðuðum hætti á innan vefsíðunnar þinnar.

Vefsíðan lærir leitarorð

Við uppsetningu er hægt að skilgreina leitina þannig að vefsíðan læri ákvðin leitarorð þegar þau eru slegin inn aftur og aftur. Þannig verður til flýtileið sem auðveldar notendum vefsíðunnar að finna það sem leitað er að. Einnig er hægt að setja leitina upp með þeim hætti að aðeins tilteknir innskráðir notendur fá að leita. Með þssum hætti er hægt að tvinna saman leit og hið öfluga aðgangsstýringakerfi frá Drupal.

Settu upp leit til að auka enn frekar á þægindi notandas þegar hann hefur fundið síðuna þína.

Emstrur vefsíðugerð innri vefur