Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Fréttakerfi til að segja fréttir af því sem máli skiptir

Fréttakerfi gagnast bæði stórum og smáum félögum sem og stórum og smáum fyrirtækjum. Fréttakerfið er sveigjanlegt og jafnframt þægileg leið til að endurnýja upplýsingar á vefnum með einföldum hætti. Sérstaklega þar sem auðvelt er að setja mynd með fréttinni og gefa henni þannig aukið vægi og líflegra yfirbragð. Þá getur þú með auðveldum hætti notað fréttakerfið fyrir almennar mikilvægar tilkynningar fyrir vefsíðuna þína.
Kynningarmyndband fyrir innsetningu á frétt
Umsjón með fréttakerfinu
Umsjón með fréttum er á færi allra sem kunna á tölvu og fréttirnar er hægt að skrifa, laga og breyta hvenær sem er og hvar sem er þar sem innskráningar- og adminkerfið er á netsíðunni. Fréttakerfið er hluti af vefstjórnunarkerfi frá Drupal sem gerir notandanum mögulegt að skrifa nýja frétt, leiðrétta fréttir, skipta um myndir, skrá nýja notendur og breyta notendum.
Vertu þinn eigin fréttastjóri
Ef þú ert að hugsa um vefsíðugerð fyrir félag eða fyrirtæki þá er vefsíða með fréttakerfi frá Drupal sérlega hentugt fyrir þá sem þurfa að koma upplýsingum á framfæri. Mörg félög, fagfélög og áhugamannafélög, þurfa reglulega að koma fréttum af starfi félagsins á framfæri við félagsmenn með skjótum hætti.
Fréttakerfi HÍ byggir á Drupal
Uppsetning og stjórnun frétta í fréttakerfinu frá Drupal er bæði einföld og öflug. M.a. var samhæft fréttakerfi Háskóla Íslands og samtvinnað fréttakerfi sviða og deilda sett upp í Drupal . Þar birtast fréttir sérstaklega sem hluti af fréttaveitu Háskóla Íslands ásamt því að birtast sem fréttir deilda og sviða sérstaklega. Vefstjórar hafa síðan fullt vald yfir öllum fréttum og útliti frétta.
Segðu þínar fréttir sjálfur og láttu fréttirnar þínar örðva leitarvélarnar.

Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
